☀️ Sólarfrí

Um okkur

Spánn, á íslensku

Sólarfrí er íslenskur bókunarvefur fyrir hús og bíla á Spáni. Hér finnur þú orlofshús, íbúðir og bílaleigubíla á einum stað - með lifandi dagatölum, skýru heildarverði og staðfestingu á íslensku.

Af hverju Sólarfrí?

Margir Íslendingar eiga hús eða bíl á Spáni og leigja út til annarra Íslendinga. Hingað til hafa slíkar auglýsingar dreifst um Facebook-hópa og litlar heimasíður - oft án dagatals, án verðs og án þess að hægt sé að bera saman. Við vildum gera þetta einfaldara, hraðara og öruggara.

  • Laus dagatöl - þú sérð strax hvaða dagar eru lausir, áður en þú hefur samband.
  • Skýrt heildarverð - árstíðaverð og þrifagjald eru reiknuð með áður en þú sendir beiðni. Engin falin gjöld frá okkur.
  • Bókunarnúmer og staðfesting - hver bókun fær sitt númer og þú færð staðfestingu í tölvupósti með öllum upplýsingum.
  • Allt á korti - þú sérð strax hvar húsið er og hvað er í kring.
  • Íslenska og enska - vefurinn og allir póstar eru á báðum málum.

Svona virkar þetta fyrir gesti

  1. Finndu hús eða bíl og veldu dagana í dagatalinu.
  2. Þú sérð heildarverðið strax, með árstíðaverði og þrifagjaldi.
  3. Sendu bókunarbeiðni. Sumar eignir staðfestast strax (⚡), annars svarar leigusalinn beiðninni.
  4. Þú færð staðfestingu í tölvupósti með bókunarnúmeri, heimilisfangi og komuupplýsingum - og dagatalsskrá sem þú getur sett beint í símann.

Ekkert er greitt á vefnum. Leigusalinn hefur samband um greiðslu eftir að bókunin hefur verið staðfest.

Fyrir leigusala

Áttu hús eða bíl á Spáni? Eins og er kostar ekkert að skrá eign hjá okkur. Þú stjórnar dagatalinu sjálf(ur), getur sett árstíðaverð og þrifagjald, valið hvort bókanir staðfestist sjálfkrafa og færð bókunarbeiðnir beint í tölvupósti og á Mínum síðum. Allar nýjar skráningar eru yfirfarnar áður en þær birtast.

Öryggi og traust

  • Allar nýjar skráningar eru yfirfarnar áður en þær birtast á vefnum.
  • Vefurinn er dulkóðaður (HTTPS) og lykilorð eru aldrei geymd í læsilegu formi.
  • Við biðjum aldrei um kortanúmer - hvorki á vefnum, í tölvupósti né í síma.
  • Engar auglýsinga- eða rakningarkökur. Upplýsingarnar þínar eru hvorki seldar né notaðar í auglýsingar.

Nánar í skilmálum og persónuverndarstefnu og spurt og svarað.

Hafðu samband

Sólarfrí

Áttu hús eða bíl á Spáni?

Skráðu eignina ókeypis, stjórnaðu dagatalinu sjálf(ur) og fáðu bókunarbeiðnir frá Íslendingum beint á Mínar síður.

Skrá eign