Spurt og svarað
Engin spurning passar við leitina.
Fyrir gesti
Hvernig bóka ég?
Finndu hús eða bíl, veldu komu- og brottfarardag í dagatalinu og fylltu út nafn og netfang. Þú sérð heildarverðið áður en þú sendir beiðnina. Þú þarft ekki að stofna aðgang til að bóka.
Er bókunin staðfest strax?
Það fer eftir eigninni. Eignir merktar ⚡ Staðfestist strax eru bókaðar um leið ef dagarnir eru lausir. Annars er bókunin beiðni sem leigusalinn staðfestir eða hafnar - þú færð tölvupóst í báðum tilvikum. Bókun er ekki bindandi fyrr en hún hefur stöðuna Staðfest.
Hvað er bókunarnúmer og hvar finn ég bókunina mína?
Hver bókun fær númer, t.d. SS-26-0001. Það kemur fram í öllum póstum frá okkur. Með númerinu og netfanginu getur þú alltaf opnað bókunina undir Bókunin mín - séð stöðuna, verðið og komuupplýsingar.
Hvernig greiði ég?
Ekkert er greitt á vefnum. Þegar bókunin hefur verið staðfest hefur leigusalinn samband við þig um greiðslu og afhendingu. Greiðsluskilmálar leigusalans koma fram í bókunarskilmálum við bókun eða í samskiptum við hann.
Hvernig forðast ég svik?
- Greiddu aldrei fyrr en bókunin hefur verið staðfest og þú hefur fengið póst frá okkur með bókunarnúmeri.
- Við biðjum aldrei um kortanúmer - hvorki í tölvupósti, í síma né á vefnum.
- Ef einhver biður þig að greiða utan venjulegs ferlis eða á óvæntan reikning, hafðu samband við okkur áður en þú greiðir.
Hvað kostar dvölin?
Verðið á síðu eignarinnar er heildarverðið: verð á nótt (eða dag fyrir bíla) - með árstíðaverði ef það á við - auk þrifagjalds ef það er. Við bætum engum gjöldum við.
Get ég leigt í heilan mánuð eða yfir veturinn?
Já, hjá eignum sem bjóða mánaðarleigu (📅). Þar velur þú mánuð beint í bókunarboxinu eða velur dagana sjálf(ur) í dagatalinu. Heill mánuður er talinn frá komudegi og dagar umfram heila mánuði kosta hlutfall af mánaðarverðinu. Á listasíðunum getur þú síað á Mánaðarleiga.
Get ég afbókað?
Já. Á bókunarsíðunni þinni er hnappur til að afbóka fram að komudegi og leigusalinn fær tilkynningu. Hvert hús hefur ókeypis afbókunarfrest sem birtist áður en þú bókar, t.d. 30 dagar: afbókir þú fyrr er allt endurgreitt. Eftir það er staðfestingargjaldið óendurkræft (eða ekki endurgreitt ef ekkert staðfestingargjald er). Ef leigusalinn afbókar á að endurgreiða allt.
Hvað er staðfestingargjald?
Sumir leigusalar biðja um staðfestingargjald, t.d. 20% af heildarverði, þegar bókunin er staðfest. Upphæðin og síðasti dagur ókeypis afbókunar koma fram í bókunarboxinu, í staðfestingarpóstinum og á bókunarsíðunni þinni.
Get ég fengið bílinn afhentan á flugvellinum?
Já, ef eigandinn býður það (✈️). Þú velur flugvöllinn í bókunarboxinu - gjaldið fyrir afhendinguna leggst við verðið - og gefur upp flugnúmer og lendingartíma svo eigandinn viti hvenær þú kemur.
Hvenær fæ ég heimilisfang og komuupplýsingar?
Um leið og bókunin er staðfest: í staðfestingarpóstinum og á bókunarsíðunni þinni. Þar eru líka upplýsingar frá leigusalanum, t.d. um lykla, Wi-Fi og bílastæði.
Hvað ef leigusalinn svarar ekki?
Flestir svara fljótt. Ef þú hefur ekki fengið svar innan tveggja sólarhringa, hafðu samband við okkur og við göngum í málið.
Þarf ég aðgang?
Nei. Með aðgangi sérðu hins vegar allar bókanir þínar á einum stað undir Mínum síðum.
Hvað þarf ég til að leigja bíl?
Gilt ökuskírteini og að uppfylla aldursskilyrði bílsins. Skilmálar um tryggingar, eldsneyti og afhendingu koma fram í lýsingu bílsins - spurðu leigusalann ef eitthvað er óljóst áður en þú staðfestir.
Fyrir leigusala
Hvað kostar að skrá eign?
Eins og er er ókeypis að skrá eign. Ef það breytist verður það kynnt með góðum fyrirvara og aldrei lagt á bókanir sem þegar eru staðfestar.
Hvernig skrái ég eign?
Stofnaðu aðgang og veldu Skrá eign. Settu inn lýsingu, verð, staðsetningu á korti og myndir. Við yfirförum skráninguna og hún birtist um leið og hún hefur verið samþykkt.
Hvernig stjórna ég dagatalinu?
Undir Mínum síðum smellir þú á daga til að loka þeim eða opna. Staðfestar bókanir lokast sjálfkrafa svo ekki er hægt að tvíbóka.
Get ég haft mismunandi verð eftir árstíma?
Já. Undir Verð eftir tímabilum og mánaðarleiga á síðu eignarinnar setur þú tímabil, t.d. sumarverð, jólaverð eða páskaverð - hvert með sínu verði á nótt og sinni lágmarksdvöl. Þrifagjald leggst einu sinni á hverja bókun. Með Prófaðu verðið sérð þú nákvæmlega hvað dvöl kostar, og gestir sjá alltaf heildarverðið áður en þeir bóka.
Get ég boðið heilan mánuð á föstu verði?
Já. Settu verð fyrir heilan mánuð á eignina - eða aðeins á tiltekið tímabil, t.d. vetrarleigu frá nóvember til mars. Viljir þú aðeins leigja í heila mánuði á því tímabili setur þú lágmarksdvöl 28 nætur. Gestir geta þá valið heilan mánuð beint í bókunarboxinu.
Hvað er sjálfvirk staðfesting?
Ef þú kveikir á henni staðfestast bókanir strax ef dagarnir eru lausir og gesturinn fær staðfestingu um leið. Annars færðu beiðni sem þú staðfestir eða hafnar sjálf(ur).
Get ég krafist staðfestingargjalds?
Já. Á síðu hússins velur þú hvort gestur greiði staðfestingargjald (20%) þegar bókun er staðfest, og hve mörgum dögum fyrir komu gestur getur afbókað með 100% endurgreiðslu. Skilmálarnir birtast gestum áður en þeir bóka og vistast með hverri bókun.
Hvað er skráningarnúmer (NRUA)?
Frá 1. júlí 2025 þarf hver auglýsing um orlofs- eða tímabundna leigu á Spáni að sýna skráningarnúmer úr Registro Único de Arrendamientos. Þú sækir um það hjá Registro de la Propiedad og setur það inn á síðu hússins.
Hvað þarf ég til að leigja út bílinn minn?
Spænskt skráningarskírteini (permiso de circulación), skoðunarvottorð með gildri skoðun (ITV), tryggingu sem gildir þegar bíllinn er leigður öðrum og persónuskilríki. Ef bíllinn er á lánasamningi eða skráður á annan þarf líka heimild. Við yfirförum skjölin áður en bíllinn birtist, og hann hverfur sjálfkrafa ef skoðun eða trygging rennur út - þú færð áminningu 30 dögum áður. Venjuleg einkatrygging nær yfirleitt ekki yfir útleigu, og ef þú leigir reglulega gæti þurft að skrá bílinn sem bílaleigubíl hjá DGT.
Hvernig fæ ég greitt?
Beint frá gestinum, eftir þínu fyrirkomulagi. Sólarfrí tekur ekki við greiðslum eins og er og tekur enga þóknun.
Má ég nota myndir af netinu?
Aðeins myndir sem þú hefur tekið sjálf(ur) eða hefur skýrt leyfi til að nota. Myndir frá fasteignasölum og öðrum vefjum eru yfirleitt höfundarréttarvarðar.
Öryggi og persónuvernd
Er vefurinn öruggur?
Já. Öll samskipti eru dulkóðuð (HTTPS), lykilorð eru aldrei geymd í læsilegu formi, skráningar eru yfirfarnar og við notum engar rakningar- eða auglýsingaþjónustur.
Hvaða upplýsingar geymið þið?
Aðeins það sem þarf til að bókun gangi upp: nafn, netfang, síma og upplýsingar um bókunina. Nánar í persónuverndarstefnunni.
Notið þið vafrakökur?
Aðeins nauðsynlegar: eina fyrir innskráningu og öryggi og eina sem man tungumálið sem þú valdir. Engar auglýsinga- eða greiningarkökur.
Hvernig eyði ég aðganginum mínum?
Sendu okkur póst af netfanginu sem aðgangurinn er skráður á og við eyðum honum. Bókanir eru geymdar eins lengi og lög krefjast.